Úrslitakeppni framhaldsskólanna í eðlisfræði

Undankeppnin í eðlisfræði var haldin í framhaldsskólum landsins í byrjun febrúar. U.þ.b.140 nemendur víðsvegar um land tóku þátt, þar af 6 nemendur úr FSu. Af þessum 140 nemendum voru síðan 14 stigahæstu nemendunum boðið að taka þátt í úrslitakeppninni og fengu þeir einnig bókaverðlaun fyrir góðan árangur í undankeppninni. Einn nemandi úr FSu komst áfram í þessi úrslit, Ívar Örn Kristjánsson. Helgina 15. og 16. mars voru úrslit eðlisfræðikeppninnar haldin í Háskóla Íslands. Úrslitakeppnin skiptist í tvo hluta, annarsvegar fræðilegan og hinsvegar verklegan. Á laugardeginum var mætt um 8:30 upp í háskóla og upp úr 9 hófst þriggja tíma fræðilegt próf.
Prófað var úr helsta efni eðlisfræðiáfanganna sem kenndir eru í framhaldskólum landsins. Á sunnudeginum var verklegi hlutinn sem fólst í því að taka tvær verklegar tilraunir og skrifa skýrslu um þær. Fimm stigahæstu nemendurnir fengu svo boð um að fara á ólympíuleikana í eðlisfræði sem eru haldnir í Kazakstan þetta árið og munu fjórir frá MR taka þátt og einn frá Flensborg fyrir Íslands hönd.
Ívar sagði þessi keppni vera „feikilega skemmtilega og var frábær heiður að vera valinn úr 140 manna hópi til þess að taka þátt“.