Unnið í Jólagarðinum

Nemendur úr grunndeild rafiðna voru á dögunum fengnir til að sjá um raftengingar á kofum í svonefndum Jólagarði sem verið er að koma upp í Tryggvagarði á Selfossi. Á myndinni eru þau Davíð Guðmundsson, Þórdís Björnsdóttir og Kacper Bielawski á vettvangi, en aðrir nemendur grunndeildarinnar komu líka að verkefninu.