Þjóðhátíðarliðið sigraði Flóafár 2018

Sigurliðið - Þjóðhátíðarliðið að lokinni keppni.
Sigurliðið - Þjóðhátíðarliðið að lokinni keppni.

 

Þjóðhátiðarliðið sigraði hið árvissa Flóafár sem fór fram á föstudag. Í Flóafári keppa lið undir stjórn nemenda í þrautum sem starfsmenn skólans útbúa. Keppt er um stig fyrir þrautarlausnir og að klára á góðum tíma. Skólinn allur er undirlagður, hver krókur og kimi notaður og mikill metnaður hjá öllum liðum að vera með flottan heildarsvip, útbúa sitt svæði, halda góðum liðsanda, semja skemmtiatriði og skipuleggja sig vel. Fjögur lið tóku þátt að þessu sinni, hvert með sinn einstaka stíl, Þjóðhátið, NBA, Bjarnabófar og Baywatch. Sem fyrr sagði sigraði Þjóðhátiðarliðið, en í 2. sæti varð Baywatch. Veittar voru sérstakar viðurkenningar fyrir ákveðin atriði: Baywatch sigruðu í borðalagningu, Bjarnarbófar fengu viðurkenningu fyrir hellaðasta herópið og Þjóðhátíðarliðið fyrir svakalegasta svæðið, Bjarnarbófar fengu viðurkenningu fyrir biluðustu búningana, Þjóðhátíð fékk viðurkenningu fyrir mögnuðustu hópmyndina og viðurkenningu fyrir skemmtilegasta skemmtiatriðið fékk Baywatch.

Starfsmenn keppa svo innbyrðis um besta búninginn, en það voru þau Kristín Runólfsdóttir og Sigurþór Leifsson sem fengu viðurkenningu fyrir sína búninga, en þau mættu sem Magnús og Eyjólfur. 

Keppnin fór einstaklega vel fram, allir stóðu sig mjög vel og dagurinn góður endir á vel heppnaðri viku með kæti og gleði að leiðarljósi eins og FSu-ingum er tamt.

Fleiri myndir af Flóafári 2018 má sjá á fésbókarsíðuskólans.