The Incredibles sigruðu Flóafár 2016

Liðið The Incredibles, hinir ótrúlegu, sigraði hið árvissa Flóafár sem fór fram fyrr í dag. Í Flóafári keppa lið undir stjórn nemenda í þrautum sem starfsmenn skólans útbúa. Keppt er um stig fyrir þrautarlausnir og að klára á góðum tíma. Skólinn allur er undirlagður, hver krókur og kimi notaður og mikill metnaður hjá öllum liðum að vera með flottan heildarsvip, útbúa sitt svæði, halda góðum liðsanda, semja skemmtiatriði og skipuleggja sig vel. Fimm lið tóku þátt að þessu sinni, hvert með sinn einstaka stíl, The Incredibles, Hawaii, Casino, Lögreglan og Hafnarbolti. Sem fyrr sagði sigraði lið The Incredibles, en í 2. sæti varð Lögregluliðið. Veittar voru sérstakar viðurkenningar fyrir ákveðin atriði: Lögregluliðið sigraði í borðalagningu, Casino fékk viðurkenningu fyrir besta herópið og besta svæðið, The Incredibles fengu verðlaun fyrir bestu búningana og viðurkenningu fyrir besta skemmtiatriðið fékk Hafnarboltaliðið.

Starfsmenn keppa svo innbyrðis um besta búninginn, en það voru þær Nanna Þorláksdóttir, Inga Magnúsdóttir og Helga Dögg Sigurðardóttir sem fengu viðurkenningu fyrir sína búninga, en þær mættu sem Bakkabræður. floafar 7 1

Keppnin fór einstaklega vel fram, allir stóðu sig mjög vel og dagurinn góður endir á vel heppnaðri viku með kæti og gleði að leiðarljósi eins og FSu-ingum er tamt.

Myndirnar tók Örn Óskarsson, en fleiri myndir af Flóafári 2016 má sjá á fésbókarsíðuskólans.