ÞÁTTTAKA Í HEIMSMEISTARAMÓTI Í BLÓMASKREYTINGUM

Nemendur Blómaskreytingabrautar FSu að Reykjum í Ölfusi.
Nemendur Blómaskreytingabrautar FSu að Reykjum í Ölfusi.

Nemendur blómaskreytingabrautar við FSu á Reykjum í Ölfusi fóru nýlega ásamt kennurum sínum til borgarinnar Manchester á Englandi að taka þátt í heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum. En heimsmeistaramótið INTERFLORA er stærsti alþjóðlegi viðburður í heimi blómaskreytinga.

Mótið hefur verið haldið á nokkurra ára fresti víðs vegar um heiminn allt frá árinu 1972. Fulltrúar frá tuttugu löndum unnu fjölmörg verkefni í þrjá daga til þess að skera úr um hver væri sigurvegari. Úrslitakeppnin fór fram fyrir framan 600 áhorfendur og var gríðarlega spennandi. Þessi ferð var mikil upplifun fyrir bæði verðandi og starfandi blómaskreyta. Núna er stefnan tekin á þátttöku Íslands í næstu keppni.

Nánari upplýsingar um heimsmeistaramótið má finna á: World Cup 2023

beiþ / jöz