Sveinar útskrifast

Í dag voru fimm sveinar útskrifaðir frá skólanum með staðið sveinspróf í húsasmíði. Það var fulltrúi Iðunnar fræðslusetur sem sem kynnti niðurstöður sveinsprófa. Hæsta einkunn var 10 fyrir verklegt sveinsstykki sem er frábær árangur. 
Samtals luku 41 sveinn í húsasmíði prófi í vor á landinu öllu.
Hinir útskrifuðu húsasmiðir eru allir byrjaðir að vinna sem smiðir.
Á myndinni má sjá nemendur við sveinsstykki sín, ásamt kennurum, aðstoðarskólameistara og fulltrúa Iðunnar.