Starfsfólk prjónar veggrefil

Á myndinni má sjá bút af verkefninu í höndum hönnuða og skipuleggjenda verkefnisins.
Á myndinni má sjá bút af verkefninu í höndum hönnuða og skipuleggjenda verkefnisins.

Starfsfólk FSu keppist þessa dagana við skemmtilegt prjónaverkefni. Á fundum, á kaffistofunni og jafnvel í vinnuherbergjum kennara má sjá litla garnpoka á víð og dreif ásamt prjónuðum garðaprjónslengjum. Í verkefninu taka þátt kennarar og annað starfsfólk af báðum kynjum. Verkefnið er ekki smátt í sniðum, tæplega tólf fermetra bútaprjóns veggrefill. Myndefni refilsins er íslenskt landslag, jökullinn, fjöllin, móinn, blómin og steinarnir undir bláleitum himninum. Verkefnið er styrk af Ístex og FSu en veg og vanda að hönnun refilsins og útfærslu eiga tveir kennarar skólans þær Ágústa Ragnarsdóttir og Guðbjörg Dóra Sverrisdóttir.