Starfsdagur í FSu

Kennarar unnu saman á starfsdegi mánudaginn 30. maí og fengust við ýmis verkefni. Unnið var í deildum fyrir hádegi þar sem vinna vetrarins var ígrunduð og rædd og horft fram á við. Eftir hádegi var fyrirlestur um leiðsagnarmat með Rúnari Sigþórssyni, prófessor við kennaradeild Háskólans á Akureyri og fyrirlestur um framkvæmd leiðsagnarmats í FMos, en þar kynnti Marta Guðrún Daníelsdóttir, stærðfræðikennari, framsetningu leiðsagnarmats í skólastarfi og sagði frá þeim leiðum sem eru færar.