SÓLARSÝN AÐ VORI

Fullyrða má að sjaldan njóti sólar á Íslandi. Að minnsta kosti þegar samanburður er gerður við önnur lönd og aðrar þjóðir. En þegar hún birtist á bláum himni kunnum við svo sannarlega að meta hana.

Að loknu fundarhaldi starfsmanna FSu miðvikudaginn 21. maí þar sem meðal annars verkefni úr fageflingarsjóði skólans voru kynnt nutu starfsmenn skólans sólarinnar með því að ganga út um suðurdyr Bollastaða. Leggjast í gras eða á setjast á stétt og sötra svartbaunaseyðið sem myndar fína andstæðu í skáldskap. Og af því tilefni verður vitnað í ljóð eftir gleymt en gjöfult skáld séra Bjarni Gizurarson (1647 – 1701) sem orti kvæðið Sólarsýn:

Sæl vermir sólin oss alla.

Í hæðum byggir herrann sá

sem henni skipaði loftið á

hans vil ég að fótum falla.

jöz.