SOGSSVÆÐI LANDSVIRKJUNAR SKOÐAÐ

Fimmtudaginn 8. október síðastliðinn fóru nemendur á öðru og þriðja ári í málmdeild FSu í heimsókn á Sogssvæði Landsvirkjunar ásamt þremur kennurum. Um fjörutíu manna hóp var að ræða og fengin rúta hjá GTS. Í stöðinni að Írafossi tóku á móti hópnum Matthildur María stöðvarstjóri og Gústav Magnús verkefnisstjóri sem skiptu hópnum í tvennt og fór annar í skoðunarferð um virkjunina í fylgd vélfræðings og viðhaldsstjóra á meðan hinn hlýddi á fyrirlestur um starfsemi Landsvirkjunar og uppbyggingu virkjanakerfisins. Síðan var hópunum víxlað.

Nemendur sýndu heimsókninni mikinn áhuga og voru einkar duglegir að forvitnast í formi spurninga og voru skólanum sínum til mikils sóma. Heimkomin á hádegi sneru þau sér aftur að hefðbundnu námi með bros á vör. Að sögn Gísli Viðars Oddssonar brautarstjóra vélvirkjabrautar er það von kennara að þetta góða og gjöfula samband við Landsvirkjun haldi áfram „og heimsókn eins og þessi geti orðið árlegur viðburður fyrir nemendur í málmdeild FSu.”

gvo / jöz