Skemmtilegt samstarf

Matthías Sigvaldason og Sigdís Erla Ragnarsdóttir í hlutverkum sínum í verkinu Hvað ertu að gera? ef…
Matthías Sigvaldason og Sigdís Erla Ragnarsdóttir í hlutverkum sínum í verkinu Hvað ertu að gera? eftir Bríeti Auði Baldvinsdóttur.

Nemendur í leiklist og nemendur í íslensku í skapandi skrifum unnu saman á haustönn. Hefð er komin á þetta samstarf en þá skrifa nemendur í skapandi skrifum stutt leikverk sem nemendur í leiklist fá í hendur, útfæra, æfa og setja á svið. Afurðin varð svo lítil leiklistarhátið sem haldin var í hinum ýmsu rýmum skólans eins og í gryfju í miðrýminu, í kjallara skólans, á bókasafni, fyrir framan einstakar stofur og að sjálfsögðu á sal skólans Gaulverjabæ. Frumsýnd voru sjö ný íslensk verk. Efnistök voru fjölbreytt og vitnuðu um heilmikla hæfileika. Umfjöllunarefnið var margskonar þar á meðal ástir og örlög í frystihúsi, samtal um fisk í skóbúð, togstreita við að fara að heiman, að koma út úr skápnum og gömul hjón að karpa eftir ævilangt hjónaband. Góður rómur var gerður að þessari uppsetningu sem braut aðeins upp hefðbundið skólastarf. Þeir kennarar sem stóðu að þessari samvinnu eru Guðfinna Gunnarsdóttir og Jón Özur Snorrason.