SAMEIGINLEGIR KÓRTÓNLEIKAR FSu og ML

Síðdegis kórtónleikar FSu og ML hljómuðu í dag í Selfosskirkju. Kirkjubekkirnir þéttsetnir og Guðný heiðurskona Sigurðardóttir vísaði til sætis. Stjórnandi beggja kóranna er hugsjóna – og tónlistarmaðurinn Stefán Þorleifsson. Kórstarf hans verður seint ofmetið. Svo er gaman að tengja sögu þessara skóla saman í söng. Annar stofnaður 1953 og hinn 1981. Flaggskip menntunar á Suðurlandi. Og hljómur ungdómsins var góður í þessari fallegu kirkju sem heldur upp á 70 ára kirkjustarf um þessar mundir.

Stefán færði Selfosskirkju kærar þakkir fyrir að hýsa tónleikana því samvinnan í menningarmálum skiptir svo miklu máli. Þótt nemendafjöldi ML sé aðeins einn fimmti af nemendafjölda FSu var kór þeirra mun fjölmennari. Kórastarf í ML á sér rótgróna hefð og kannski má segja að auðveldara sé að virkja kórastarf í heimavistarskóla en í áfangaskóla sem sækir daglega nemendur frá Hvolsvelli til Þorlákshafnar.

Söngskráin var í bland erlend og innlend lög – í heild tólf lög - en endirinn var eftirminnilegur þar sem báðir kórarnir fluttu á dásamlegan hátt þjóðsöng Sveinbjörns Sveinbjörnssonar við kvæði Matthíasar Jochumssonar.

jöz.