RITHÖFUNDURINN ÆVAR ÞÓR HEIMSÆKIR FSu
Áfangi í barnabókmenntum hefur um árabil verið kenndur sem hluti íslenskunáms í FSu. Á þessari önn iðka 70 nemendur lestur og greiningu bóka fyrir börn ásamt því að lesa fræði og sögulegt yfirlit. Til fróðleiks má geta þess að fyrsta heila íslenska barnabókin er sögð frá 1780 eftir séra Vigfús Jónsson þar sem hann leggur börnum til kurteisa siði ekki ósvipaða þeim sem séra Hallgrímur Pétursson gerði rúmlega öld áður í Heilræðavísum sínum.
En nú er öldin önnur og gildismatið gjörbreytt. Barnabókahöfundum hefur fjölgað til muna og gæði bókanna í texta og myndlýsingu vaxið svo hratt að undrun sætir. Fullyrða má að þeir sem sinna börnum og barnamenningu á Íslandi í dag séu taldir í mörgum tugum. Einn þeirra er Ævar Örn Benediktsson sem um tíma og aðallega í gegnum fræðsluþætti RÚV var þekktur undir heitinu Ævar vísindamaður. Hann hefur lagt sérstaka áherslu á að efla lestraráhuga barna þar sem spenna, húmor og ævintýri, vísindi og virkni lesandans blandast saman. Í þeim efnum er hann þekktastur fyrir Þínar eigin sögur þar sem barnið velur sögu sinni framvindu.
Á þessari önn lásu nemendur meðal annars söguna Skólastjórann sem Ævar gaf út um síðustu jól. Hressileg saga um 12 ára óþekktarorm sem snýr við hefðbundnum gildum með því að sækja um – og fá – skólastjórastöðu í sínum skóla. Af því tilefni var ekki úr vegi að fá höfundinn í heimsókn í tveggja tíma spjall þar sem hann fór yfir feril sinn og lýsti viðhorfum sínum til lífs og listar ásamt því að svara undirbúnum spurningum nemenda. Segja má – eins og í lok góðrar barnabókar – að allt hafi endað með stakri prýði, höfundi, nemendum og kennurum til sóma.
jöz.







