Rafrænar töflubreytingar á haustönn 2026

Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum geta óskað eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, þriðjudaginn 18. ágúst milli klukkan 09:00 og 14:00. Nemendur sjá samdægurs hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.

Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða.

Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.

Útskriftarnemendur

Nemendur sem hyggjast útskrifast í desember eru hvattir til að fara vel yfir námsferilinn sinn. Sé þörf á töflubreytingum eru þeir beðnir um að nota rafrænu töflubreytingarnar. Útskriftarnemendur geta bókað viðtal hjá áfangastjóra eða sent póst með efnislínu Útskrift haust 2026.

Námsráðgjafar verða til aðstoðar við töflubreytingar miðvikudaginn 19. ágúst sem hér segir:

  • Agnes í stofu 309 kl. 8:30-12:00 og 12:30-14:00
  • Anna Fríða í stofu 311 kl. 8:30-12:00 og 12:30-14:00
  • Bjarney í viðtalsherbergi í Hamri kl. 8:30-12:00 og 12:40-15:30

Þarf ekki að panta tíma, bara mæta.

Smellið hér til að nálgast leiðbeiningar vegna rafrænna töflubreytinga

Stokkatafla-Eyktaskipan

Áfangar í stokkum