Rafrænar töflubreytingar á vorönn 2026
Nemendur sem þurfa nauðsynlega að láta breyta stundatöflum sínum þurfa nú að óska eftir töflubreytingu rafrænt í Innu, miðvikudaginn 7. janúar milli klukkan 10:00 og 13:00. Nemendur sjá samdægurs hvort tafla þeirra hafi breyst samkvæmt ósk eða ekki. Hafi taflan ekki breyst hefur ekki verið unnt að gera breytinguna. Ástæða þess er oftast sú að hópar eru orðnir fullir.
Athugið að töflubreytingar eru aðeins samþykktar ef um nauðsynlegar breytingar er að ræða.
Ekki er hægt að fá töflubreytingu eingöngu til að skipta um hópa.
Útskriftarnemendur:
Nemendur sem hyggjast útskrifast í vor eru hvattir til að fara vel yfir námsferilinn sinn. Sé þörf á töflubreytingum eru þeir beðnir um að nota rafrænu töflubreytingarnar. Útskriftarnemendur geta sent póst á áfangastjóra með efnislínu: "útskrift vor 26".
Námsráðgjafar verða til aðstoðar þennan dag á sínum skrifstofum og einnig er hægt að senda tölvupóst á namsradgjof@fsu.is. Fyrirspurnum verður svarað um leið og hægt er.
Smellið hér til að nálgast leiðbeiningar vegna rafrænna töflubreytinga







