Örtónleikar í Odda

Ein af skólahljómsveitunum, The Assassin of a Beautiful Brunette, hélt örtónleika í Odda fimmtudaginn 14. apríl. Hljómsveitin var að vekja athygli á tónleikum sem hún heldur ásamt annarri sveit, Agent Fresco, á Selfossi föstudaginn 15. apríl, en þar verður fyrsta tónlistarmyndband ABB frumsýnt. Sýnishorn af myndbandinu, þar sem kunnuglegum persónum bregður fyrir, má sjá á Youtube. Þess má geta að ABB á nú lag í 20. sæti á vinsældalista Rásar 2.