Opnun skrifstofu

Skrifstofa skólans var opnuð 7. ágúst kl. 8.00.

Unnið er að undirbúningi haustannar. Mikilvægt er að allir sem ætla að stunda nám á haustönn hafi greitt heimsendan gíróseðil. Nemendur sem ekki hafa gert það verða teknir út úr kerfinu um helgina.

Nýnemar mæta fimmtudaginn 22. ágúst. kl. 9:00. Nánari upplýsingar um nýnemadaginn verða sendar út í lok næstu viku. Þann dag verður bóksala skólans opnuð kl. 10:00.

Inna -upplýsingavefur framhaldsskóla opnar föstudaginn 23. ágúst. Þann dag verða töflubreytingar leyfðar. Athugið að þetta er eini dagurinn sem hægt verður að breyta  töflunni.