Opið hús í FSu

Þriðjudaginn 24. mars er opið hús í FSu kl. 16:30 -18:00. Öll velkomin, sérstaklega 10. bekkingar og forráðamenn þeirra. 

Fjölbreytt námsframboð skólans verður kynnt en skólinn býður upp á bóknám, iðn- og starfsnám. Hér má sjá námsbrautir skólans.

Þetta er kjörið tækifæri til að skoða glæsileg húsakynni skólans. Við hlökkum til að taka á móti ykkur!