Ólöf María dúx

Aldís Elva Róbertsdóttir, Ólöf María Stefánsdóttir og Dagný Rós Stefánsdóttir hlutu allar viðurkenni…
Aldís Elva Róbertsdóttir, Ólöf María Stefánsdóttir og Dagný Rós Stefánsdóttir hlutu allar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.

Ólöf María Stefánsdóttir er dúx FSu á vorönn 2020. 96 nemendur brautskráðust föstudaginn 29. maí, í óhefðbundinni brautskráningu. Vegna samkomutakmarkana var brottfarendum skipt niður í tvo hópa og  tvær athafnir fóru fram kl. 13 og kl. 15.

Ólöf María Stefánsdóttir og Aldís Elva Róbertsdóttir hlutu viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu. Dagný Rós Stefánsdóttir hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir frábæra frammistöðu á stúdentsprófi.

Ólöf María hlaut að auki viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í  stærðfræði og náttúrufræðigreinum. Aldís Elva hlaut að auki viðurkenningar fyrir afbragðs árangur í íslensku og dönsku. Dagný Rós hlaut að auki viðurkenningar fyrir ágætan árangur í erlendum tungumálum, þýsku og spænsku og einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku og sögu.

Hekla Rún Harðardóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku. Hildur Helga Einarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir frábæran árangur í stærðfræði. Halla Helgadóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku. Anna Sigurveig Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framfarir, seiglu og afar góðan árangur í myndlist og einnig viðurkenningu fyrir vinnusemi, ástundun og miklar framfarir á námstímanum í FSu. Gróa Dagmar Gunnarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir afburða árangur í nýsköpun og miðlun. Arnar Kristinsson og Sóley Kristjánsdóttir hlutu viðurkenningar fyrir góðan árangur í leiklist. Nanna Guðný Karlsdóttir og Bjarkar Þór Sigurfinnsson hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í hönnun og textíl. Pétur Gabríel Gústafsson hlaut viðurkenningu fyrir hugmyndaríka og skapandi vinnu í kvikmyndagerð.

Bergrún Halldórsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur á hestalínu stúdentsbrautar. Halldóra Birta Sigfúsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í íþróttafræðum. Engilbert Þórir Atlason hlaut viðurkenningu frábæran árangur og vandvirkni í vélvirkjagreinum. Brynjar Jón Brynjarsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í rafvirkjun.  Ólafur Guðni Stefánsson hlaut viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur og metnað í rafvirkjun.

Sólmundur Magnús Sigurðarson og Gústaf Sæland hlutu viðurkenningar fyrir frábær félagsstörf í þágu nemenda FSu.

Nemendur frá Tónlistarskóla Árnesinga sem einnig eru nemendur í FSu fluttu tónlistaratriði við báðar athafnir. Katrín Birna Sigurðardóttir lék á selló og Simon Thor Einarsson Vijn lék á píanó.

Tveir starfmenn voru heiðraðir við starfslok, þeir Arnlaugur Bergsson og Þórarinn Ingólfsson.

Á myndinni eru þær Aldís Elva Róbertsdóttir, Ólöf María Stefánsdóttir og Dagný Rós Stefánsdóttir.

Fleiri myndir frá brautskráningu má finna á myndasíðu skólans.