ÓLAFÍA RAGNHEIÐUR ER DUX SCOLAE
Önnur fjölmennasta brautskráning í sögu FSu fór fram föstudaginn 29. maí í íþróttahús skólans IÐU. Upphaf athafnarinnar var í höndum Stefáns Þorleifssonar kórstjóra og eflandi kórs FSu. Hugdís Erla Jóhannsdóttir söng á áhrifaríkan hátt lagið Dropi í hafi eftir Unu Torfadóttur. Þá samsöngur á lagi Páls Óskars – International en að lokum varð það aftur Hugdís sem söng Forget me eftir Laufeyju. Tónlistin hljómaði sérlega vel og myndaði gott intró að góðri og skipulagðri dagskrá.
Að þessu sinni voru brautskráðir 158 nemendur af 19 námsbrautum. 91 stúdent af bóknámsbrautum, 57 af öðrum brautum og 10 af verknámsbrautum með stúdentspróf að auki.
Flestir stúdentar útskrifast af opinni línu eða samtals 41. Af náttúrufræðilínu útskrifast 13. Af íþrótta- og heilsulínu 11 nemendur. Átta nemendur klára félagsfræðilínu og aðrir sjö listalínu. Sex útskrifast af viðskipta- og hagfræðilínu. Fimm af hestalínu og tveir af alþjóðalínu. Tólf nemendur útskrifast af sérnámsbraut og aðrir tólf úr skrúðgarðyrkju. Húsasmíðabraut kláruðu 24 nemendur og þar af átta með stúdentspróf. Ellefu luku námi á rafvirkjabraut. Tveir af vélvirkjabraut og aðrir tveir í pípulögnum. Einn nemandi af garð- og skógarplöntubraut og annar af hestaliðabraut, sá þriðji af listnámsbraut og sá fjórði af ylræktarbraut.
Af þessu tilefni fullyrti skólameistari Soffía Sveinsdóttir í ræðu sinni að útskriftarhópurinn endurspeglaði vel hversu fjölbreytt nám væri stundað í FSu. Skólinn væri rúmlega þúsund manna samfélag þar sem „einstaklingar af mörgum kynjum, ýmsum þjóðernum, frá mismunandi landshlutum og með ólíkar skoðanir og væntingar. Það er mín framtíðarsýn að í FSu verði ávallt samfélag þar sem nemendur og starfsfólk fær að njóta sín á eigin forsendum.”
Afhending 158 prófskírteina gekk skipulega og faglega fyrir sig. Bókaverðlaun voru afhent fyrir einstakar námsgreinar og dreifðust á marga nemendur en afar mjótt var á mununum hver fengi titilinn DUX SCOLAE. Á endanum var það Ólafía Ragnheiður Þórðardóttir en fast á hæla hennar komu Dagný Katla Karlsdóttir og Steinunn Lilja Guðnadóttir. Allar voru þær styrktar til frekara náms af Hollvarðasamtökum FSu sem nú er stýrt að heiðurskonunni Sigþrúði Harðardóttur.
Jóhannes Haukur Kristjönuson flutti ávarp nýstúdenta á sérlega skemmtilegan hátt. Byrjaði að spyrja salinn hvort húfan hans sæti rétt á höfðinu? Taldi upp þrjá helstu kennara hans sem allir voru fjöldskyldumeðlimir. Með því beindi hann athyglinni að samvinnu samfélags og skóla. Enda segir í Njálu að fjórðungi bregður til fósturs. Að lokum beindi Jóhannes athygli nemenda að því að þótt brekkan væri að baki blasti fjallið við.
Að lokum ber að geta ræðu aðstoðarskólameistara Sigursveins Sigurðssonar að flytja annál sem gert hefur verið frá stofnun skólans. Margt áhugavert bar þar á góma eins og að námsárangur dagskólanemenda hafi verið góður því 85% eininga stóðust mat kennaranna. Kátir dagar og Flóafár eru styrkar stoðir í félagslífi skólans á vorönn hvers skólaárs. Nemandinn Manúela Maggý Friðjónsdóttir sigraði söngkeppni skólans og stóð sig vel i aðalkeppninni. Gettu betur lið skólans komst í fjögurra liða úrslit framhaldsskólanna. Kór skólans flaug til Ítalíu til söngs og hélt frábæra tónleika með móðurskóla sínum ML.
Nemendur að Reykjum í Ölfusi buðu almenningi í heimsókn að Reykjum á fyrsta sumardag og talsvert var um vettvangsferðir nemenda innan lands sem utan. Starfsþróunardagur var haldinn í Reykjavík í lok febrúar – sem er faglegt samstarf flestra framhaldsskóla í Íslandi. Þessu til viðbótar sótti fjöldi starfsfólks skólans námskeið víðsvegar um Evrópu sem nú eru möguleg með styrkjaáætlun ESB í menntamálum.
Að öllu þessu sögðu er hefð fyrir því að vitnað sé til hins nafnlausa skólaskálds sem vísar til þess fagnaðar að heilsa nýjum nemendum og kveðja þau eftir gifturíkt samstarf.
Ég innst í hjarta fögnuð finn
er flykkjast þau í húsið inn,
kát og eplarjóð,
kankvís, blíð og góð,
að kveðja gula skólann sinn.
jöz







