Nemendur kynna fatasaum

Uppskeruboð nemenda í FAT á Starfsbraut fór fram á Bollastöðum eftir hádegi, fimmtudaginn 27. nóvember. Fremur óformlegir boðsgestir, þ.e. þeir sem voru í húsinu og á lausu þennan tíma, nutu þar persónulegra kynninga á hönnun og framleiðslu annarinnar. Á myndinni má sjá Írenu sýna vinnumöppuna sína, íklædd kjól sem hún hannaði og saumaði. Eigin veitingar nemenda og kennara voru í boði með spjalli að kynningu lokinni - stoltir nemendur og glaðir gestir nutu vel.