Morfís keppni í kvöld

Í kvöld keppir Morfíslið FSu við lið Borgarholtsskóla í 16 liða úrslitum. Keppnin fer fram í Reykjavík og hefst kl.19. Sætaferðir verða frá skólanum, en mikilvægt er að liðið hafi sterkt stuðningslið með sér í för. Keppendur fyrir FSu eru: Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ragnheiður Inga Sigurgeirsdóttir, Esther Hallsdóttir og Magnús Ágúst Magnússon. Þjálfarinn liðsins er Jóhannes Bjarki Urbancic.