MENNINGARFERÐ TIL REYKJAVÍKUR
Bókvit eða ÍSLE2BV05 er skylduáfangi í íslensku á 2. þrepi til stúdentsprófs. Þar er fengist við bókmenntir miðalda eins og eddukvæði sem er elsti skáldskapur norrænna bókmennta og varðveittur á Íslandi í ómetanlegu handriti sem kallar Codex Regius á latínu en Konungsbók eddukvæða á íslensku. Auk eddukvæða er fyrsti hluti Snorra-Eddu lesin í áfanganum sem er annað ómetanlegt handrit samið og skrifað af Snorra Sturlusyni (1179 – 1241) einum helsta rithöfundi miðalda í Evrópu. Ef Íslendingar ættu ekki þessi verk vissu þeir harla lítið um norræna goðafræði og hinn heiðna sið.
Þó kennsla í íslensku fari að stærstum hluta fram í skólastofum FSu er ekki úr vegi að taka sér ferð á hendur til höfuðstaðarins að skoða þær stofnanir sem varðveita bókmenntaarfinn og tungumálið. Þriðjudaginn 29. apríl síðastliðinn fóru 140 nemendur FSu í menningarferð til Reykjavíkur ásamt fimm kennurum að berja menningararfinn augum. Þar heimsóttu þau Eddu sem er hús íslenskra fræða, Veröld sem er hús Vigdísar Finnbogadóttur og Þjóðarbókhlöðuna. Nemendur fengu kynningu á starfsemi þessara stofnana og fóru á tvær sýningar, handritasýningu og tungumálasýningu og unnu að lokum verkefni í formi hlaðvarps sem lýsti ferðinni og upplifun þeirra.
jöz / bj