Kórinn okkar

Okkur langar að minna á tónleikana Hátíð í bæ sem fara fram þann 3. desember klukkan 20:00.  Þar mun kór Fjölbrautaskóla Suðurlands syngja og koma fram ásamt fleira góðu tónlistarfólki. Má þar nefna t.d. Ragga Bjarna, Guðrúnu Möller og fleiri, en síðast en ekki síst þá mun hinn frábæri söngvari Daníel Haukur taka lagið með kórnum ásamt hljómsveit.

Eins minnum við á aðventutónleika þann 7. desember klukkan 16:00 í Selfosskirkju, en þar mun kórinn einnig koma fram ásamt öðrum kórum og lúðrasveit.

Eins viljum við nota tækifærið og hvetja söngelska nemendur  að ganga til liðs við okkur og skrá sig kórinn, því hvað er hollara og skemmtilegra en að syngja í góðra vina hópi. Sérstaklega hvetjum við lagvissa karla/drengi til að slá til og skrá sig því við getum vel bætt í karlaraddir bæði bassa og tenór. STRÁKAR það er kominn tími til að bresta í söng JFeykilega spennandi önn framundan. Opið er fyrir skráningu alveg fram að jólum í það minnsta hjá áfangastjóra.

Kveðja 

Stjórnin