Kórinn í upptökur

Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands á 30 ára afmæli á næsta ári.  Á þessum tímamótum mun kórinn gefa út disk með ýmsu efni sem sungið hefur verið síðastliðin ár.  Á laugardag nk. mun kór FSu fara til Þorlákshafnar og eyða deginum í Þorlákskirkju við upptökur á sex lögum, bæði a-capella og með undirleik.  Á meðfylgjandi myndbandi má sjá brot af æfingu þriðjudags sl. þar sem Hallgrímur Davíð Egilsson leikur með kórnum á hörpu.  Lagið heitir Kveðja og er eftir Bubba Morthens.

{youtube}BTAx7TyNkls{/youtube}

http://youtu.be/BTAx7TyNkls