Kórinn hjá Loga

Föstudagskvöldið 6. mars kemur kór FSu fram í þættinum Logi í beinni. Kórinn flytur nokkur lög úr Queen prógammi sínu en þann 12. mars n.k. verða risa Queen tónleikar kórsins í Fífunni. Þar koma einnig fram Djassband Suðurlands með Magna og Heru Björk í broddi fylkingar. Kórstjórnandi er sem fyrr Stefán Þorleifsson. Þetta er mjög metnaðarfullt verkefni og eru Sunnlendingar hvattir til að mæta.