Kórinn á ferð og flugi

Kór FSu lagði af stað í ferðalag til Parísar þriðjudaginn 23. ágúst. Kórinn tekur þátt í tónlistarhátíð þar sem tónlistarhópar víðsvegar að koma fram.Þar má nefna hópa frá Rússlandi, Rúmeníu, Póllandi, Eistlandi og Tékklandi.  Kórinn kom fram á hátíðartónleikum á föstudegi og gekk það mjög vel. Á dagskrá voru fjölbreytt lög, flest íslensk. Að auki fær hópurinn tækifæri til að hlusta á tónleika hjá hinum hópunum og einnig að skoða sig um í París.