KÓRFERÐALAG TIL ÍTALÍU
Dagana 24. til 28. febrúar síðastliðinn fór Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands í söngferð til Ítalíu. Flogið var til Mílanó og þaðan ekið til borgarinnar Ölbu. Tilgangurinn var að hitta ítalska jafnaldra sem voru að setja upp ameríska söngleikinn Chorus Line. Auk kórs FSu kom þangað danskur kór frá framhaldsskólanum í Frederiksberg í Kaupmannahöfn. Alls voru því um áttatíu syngjandi ungmenni frá Íslandi og Danmörku auk um fimmtán ítalskra heimamanna sem léku á hljóðfæri, dönsuðu og sungu. Daginn eftir komuna tóku við strangar æfingar sem enduðu svo á sýningu um kvöldið. Húsfyllir var og góður rómur gerður af flutningi kóranna.
Morguninn eftir var svo áfram sungið og héldu þrír kórar tónleika í glæsilegum tónleikasal. Að sögn kórstjórans Stefáns Þorleifssonar voru FSu-ingar „full værukærir þegar kom að klæðnaði enda reiknað með að húsið væri upphitað eins og á Íslandi.” Á þessum tónleikum söng hver kór sína efnisskrá og sungu FSu-arar hefðbundna íslenska kórtónlist auk íslenskra dægurlaga. „Þarna toppaði kórinn sig” segir Stefán „og ekki fór á milli mála að samvinna við önnur ungmenni var mikil lyftistöng fyrir starfið ásamt frábæru tónleikahúsi með miklum hljómburði sem við eigum því miður ekki að venjast hér heima.”
Stefán segir að samvinna eins og þessi sé gífurlega mikilvæg fyrir allt skapandi starf með ungu fólki. „Þarna voru rúmlega hundrað ungmenni að hittast og mynduðust vinasambönd þrátt fyrir stuttan tíma. Það er mikið nám sem felst í svona ferðalagi og náinni samvinnu milli nemenda og kennara. Menningarmunur er þó nokkur og matur er annars konar svo eitthvað sé nefnt.”
Auk Stefáns komu tvær heiðursmæður í ferðina þær Halldóra og Lína og eiga miklar þakkir skyldar. Hvatamaður að þessu samstarfi var Barbara Borra sem kom til Íslands í ágúst síðastliðinn og hófst þá þessi samvinna. Kórinn frá Frederiksberg kom svo inn þar sem stjórnandi hans, Sören Hein er gamall skólabróðir Stefáns frá námsárum þeirra í Álaborg og hefur hann lýst yfir áhuga sínum að koma með kórinn til Íslands á næsta ári.
Kór FSu mun nú halda áfram skapandi söngstarfi og stefnir að upptökum og vortónleikum.
sþ / jöz







