Kór FSu í Dublin - Ferðasaga

Kór FSu hélt tónleika í Dublin.
Kór FSu hélt tónleika í Dublin.

Kór FSu fór í alveg einstaklega vel heppnað söngferðalag til Dublinar á Írlandi dagana 17.– 23. april síðastliðinn.

Fyrir rúmum tveimur árum hélt kórinn einnig utan, þá var ferðinni heitið til Bolzano Ítalíu, það var frábær ferð og fengum við hjónin Erlend Þór og Jónu Fanney til að skipuleggja báðar þessar ferðir fyrir okkur. Þau eru einstakleg fær í að taka á móti kórum og öðrum hópum og setja saman skemmtilegar ferðir.

Fyrsti dagurinn fór að mestu í ferðalagið og koma sér fyrir á hosteli, en jafnframt var spásserað eilítið um Dublin  og um  kvöldið var snæddur hátiðarkvöldverður í veitingahúsinu The Church sem var mjög áhugavert. The Church er afhelguð kirkja og eitt vinsælasta veitingahúsið í Dublin. Á degi tvö var Dublinia víkingasafnið í Dublin heimsótt en eins og flestir vita var Dublin stór verslunarborg Víkinga og þaðan kom meðal annars Auður Djúpúðga sem nam land í Dölum. Að lokinn heimsókn á víkingasafnið var frjáls tími fram til klukkan sex  en þá vað arkað af stað til fundar við írskan kór er heitir Dublin Youth Choir. Haldið var „workshop“ þar sem  Örlygur Atli og Lindsey kórstjórar leiddu kórana í gegnum skemmtilega kóravinnu, síðan sungu kórarnir hvora fyrir aðra og sameiginlega. Skemmtileg kvöldstund og gaman að hitta írskan kór. Þriðji dagurinn var frjáls, en á fjórða degi var farið í National museum of Ireland þar sem við fræddumst um nútímasögu Írlands. Kórinn tók nokkur lög fyrir utan safnið. Seinna þennan sama dag fór kórinn í sögurölt með Dublin Literary Pub Crawl listfélaginu í Dublin. Gengið er þá á milli húsa í Dublin og leikin eru brot úr frægum írskum leikritum auk þess sem saga Dublinarborgar e sögð á mjög skemmtilegan hátt. Í ferðinni var rakin saga frægra írskra rithöfunda eins og Oscar Wilde o.fl. tenging þeirra rakin við ákveðna staði sem stoppað var við á leið okkar um Dublin. Eins léku félagarnir (sem eru þekktir sviðsleikarar í Dublin) úr Literary Club brot úr ýmsum frægum verkum . Að sjálfsögðu þakkaði svo kórinn fyrir sig með því að taka lagið fyrir þá félaga og aðra nærstadda í miðborginni.

Dagur fimm var tónleikadagur.  Kórinn hélt tónleika í St.Ann‘s kirkju . Hópurinn mætti í kirkjuna klukkan 14 og æfði í tvo tíma, síðan trítlaði hópurinn heim á hostel þar sem allir gerðu sig klára fyrir tónleika, fóru í sitt fínasta dress og skórnir pússaðir.

Tónleikarnir hófust  klukkan 19:30. Kórinn söng nokkur lög fyrir utan kirkju og bauð þannig gesti velkomna. Tónleikarnir tókust frábærlega og kórinn var þéttur og góður. Árni Björnsson lék undir  á bassa og Tómas sögukennari í Fsu kennari lék undir á gítar. Tónleikagestir voru afar ánægðir og skapaðist skemmtileg stemming og eins  vildu þau vita hver heimsíða kórsins væri. Einnig var óskað eftir því að kaupa af okkur geisladiska. Elli fararstjóri söng síðan einsöng með okkur í lokalaginu  og ætlaði þá þakið af kirkjunni.

Á degi sex var frjáls dagur þar sem meðal annars var farið í dýragarð, verslað og fleira. Um kvöldið var svo sameiginlegur kvöldverður  á Arlington Hotel „ Celtic Nights „  í hjarta Dublinar rétt við hina þekktu O‘Connel Bridge. Celtic Nights  er flott þjóðleg danssýning með þekktum írskum dönsurum og hljóðfæraleikurum.

Brottfaradagur. Þetta var algjörlega frábær ferð í alla staði nemendur og meðlimir kórsins voru skóla sínum  landi og þjóð til mikils sóma og eins má ekki gleyma frábæru teymi kennara Kristjönu Hrund Bárðardóttur umsjónarkennara kórsins ,Tómasi Davíð sögukennara og gítarleikara , Árna Björnssyni bassaleikara og Örlygi Atla Guðmundssyni, kórstjóra. Þau eru öll snillingar sem og farastjórarnir Elli og Jóna

Takk fyrir okkur.

Áfram Kór FSu

Stjórnin