KENNSLA Í FSu Á HAUSTÖNN 2026 ER HAFIN

Það fylgir því alltaf tilhlökkun og spenna að hefja nýtt skólaár að hausti. Engin undantekning var á því að þessu sinni. „Troðfullur skóli og skemmtileg önn framundan” segir skólameistari Soffía Sveinsdóttir.

Nemendur í dagskóla eru rétt rúmlega eitt þúsund þar af eru nýnemar 273. Auk þessa eru 29 nemendur skráðir í kvöldskóla og 134 nemendur stunda nám við garðyrkjuskólann að Reykjum í Ölfusi. Samtals er því nemendafjöldi FSu á þessari haustönn 1171 talsins.

Kennarar voru kallaðir til starfa föstudaginn 14. ágúst. Nýnemadagur haldinn þann 18. ágúst þar sem allir nýnemar skólans eru boðnir velkomnir með metnaðarfullri dagskrá. Almenn kennsla samkvæmt stundaskrá hófst svo miðvikudaginn 19. ágúst.

Framundan er 45 ára afmæli skólans en FSu var stofnaður 13. september árið 1981. Haldið verður upp á afmælið föstudaginn 11. september næstkomandi.

Regluleg færsla starfsmanna inn og út úr skólastarfinu á sér alltaf stað að hausti. Að þessu sinni hefja níu nýir starfsmenn hin margvíslegustu störf. Fimm koma aftur eftir tímabundna fjarveru og tíu starfsmenn fara í tímabundin leyfi.

Ljósmyndin sem fylgir þessari frétt sýnir hluta nýrra starfsmanna ásamt Sigursveini Sigurðssyni aðstoðarskólameistara og Guðfinnu Gunnarsdóttur sviðstjóra en hefð er fyrir því að tekið sé vel á móti þeim með upplýstum hætti.

jöz.