Kennsla hefst 24. ágúst

Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst. Nemendur mæti í skólann samkvæmt eftirfarandi: Nýnemar úr grunnskóla og aðrir sem ekki hafa verið í FSu áður, komi í skólann kl. 9:00. Eldri nemendur komi kl. 11:00. Kennsla hefst skv. stundaskrá kl. 13:10 sama dag. Skólaakstur verður þennan dag og bóksalan verður opin. Velkomin í Fjölbrautaskóla Suðurlands.