KÁTIR DAGAR OG FLÓAFÁR FRAMUNDAN
UPPBROT er nauðsynlegt í faglegu skólastarfi. Þá leggja nemendur og kennarar niður hefðbundin störf og beina athygli sinni og aðferðum í aðrar áttir. KÁTIR DAGAR eru liður í því sem hefjast miðvikudaginn 18. mars og samanstanda af dagskrá sem unnin er að frumkvæði nemenda og með stuðningi kennara. Dagskráin er afar fjölbreytt og byggir á að breyta kennslustofum og öðrum rýmum skólans í smiðjur fyrir alls konar fróðskap, skemmtun og skapandi vinnu. Dagskráin hefst stundvíslega klukkan 9.30 um morguninn með afhendingu svokallaðra vegabréfa sem leiða nemendur í þá átt sem áhuginn dregur þá. Lokahnykkur dagana er síðan íþróttakeppni milli nemenda og kennar sem fram fer í IÐU klukkan 11.30 á fimmtudag.
Sjá má dagskrá Kátra daga á heimasíðu skólans en þar er meðal annars að finna fablab smiðju, manntafl með Lalla lærimeistara, félagsvist, kórsöng skólans, hárþvottanámskeið, tölvuleikjamót, vetrarleika hestabrautar, hjartastöð og kósýstöð, prjónum saman - samveru, pílumót, skákmót, hámhorf, bingó, kveikjukrot í myndlist, origami, kynningu á björgunarsveitarstörfum, netskrafl, jóga nitra, hnútabindingar, heimsreisukynningu og uppistand með Villa Naglbít svo nokkuð sé nefnt.
Á föstudagsmorgun mæta allir starfsmenn skólans uppábúnir hinum margvíslegustu gervum og búningum alls konar lita, gerva og karaktera og etja nemendum saman í liðakeppni þar sem keppt er í öllum námsgreinum skólans. Kallast það FLÓAFÁR og er um hörku liðakeppni nemenda að ræða þar sem þeir leysa þrautir sem kennarar hafa búið til. Oftast er farin sú leið að brjóta upp hefðbundna nálgun við námsgreinarnar og stuðst við sköpunargáfu kennara og húmor. Þannig eiga efnafræðikennarar EKKI að sjá um efnafræðiþraut heldur íslenskukennarar eða smíðakennarar svo dæmi sé tekið. Flóafárið er einstakt í FSu og er rakið allar götur til skólaársins 1998 til 1999 og hefur ekki fallið niður nema tvö ár út af kófi því sem veira framkallaði.
jöz







