„Kátir dagar, koma og ...“

Miðvikudaginn 2. mars halda Kátir dagar innreið sína í FSu. Frá klukkan 11 þann dag verður skólastarfið brotið um með ýmsum uppákomum á vegum nemenda, svo sem fyrirlestrum, námskeiðum, keppni í ýmsum greinum og afþreyingu af ýmsu tagi. Kátir dagar standa líka allan fimmtudaginn en á föstudag tekur við hið rómaða Flóafár þar sem 6 lið keppa í fjölmörgum greinum. Góða skemmtun.