Kátir dagar 2026
KÁTIR DAGAR eru skóladagar þar sem er uppbrot frá hefðbundinni kennslu.
Mætingarskylda er fyrir nemendur á Káta daga þótt hefðbundin stundatafla gildi ekki þessa daga.
KÁTIR DAGAR 2026 eru miðvikudaginn 18. mars og fimmtudaginn 19. mars.
Á miðvikudeginum er hefðbundin kennsla samkvæmt stundaskrá til kl. 09:30.
Kl. 09:30 tekur dagskrá Kátu daga við og stendur hún til kl. 15:00 á miðvikudeginum.
Dagskrá fimmtudagsins byrjar á ókeypis morgunverði fyrir öll í miðrými skólans kl. 08:30 og svo hefjast dagskrárliðir kl. 09:00 og standa til kl. 11:30 þegar lokahnykkur Kátra daga byrjar í Iðu og stendur hann til ca kl. 12:10.
Eftir hádegi á fimmtudeginum er ekki formleg dagskrá en Flóafársliðin hafa tímann til að undirbúa Flóafár sem verður á föstudeginum.
Á Kátum dögum fá nemendur vegabréf sem þeir safna kvittunum fyrir þátttöku á viðburðum.
Vegabréfin eru afhend í miðrými Odda, Iðu og Hamri við upphaf dagskrár Kátra daga kl. 09:30 á miðvikudeginum. Vegabréfunum er skilað eftir lokahnykk Kátra daga í hádeginu á fimmtudeginum til kennara sem verða í Iðu, í kassa í anddyri Iðu eða á skrifstofu skólans.














