Kátir dagar

Dagskrá Kátra daga
Dagskrá Kátra daga

Í vikunni hefjast Kátir dagar í FSu. Þá er hefðbundið skólastarf brotið upp og nemendum gefst tækifæri til að kynna sér allskyns fróðleg og spennandi verkefni, þrautir og fyrirlestra. Þau velja sér viðfangsefni en skyldumæting er í skólann þessa daga. Nemendur þurfa að framvísa vegabréfi inn á viðburðina og fá stimpil til að fá mætingu gilda. Undirbúningur hefur verið á herðum Kátu daga nefndar sem skipuð er bæði nemendum og kennurum. Kátir dagar hefjast formlega kl.10:15, miðvikudaginn 28. febrúar. Dagskrána má sjá á meðfylgjandi mynd.