Kaffinu bjargað

Tveir nemendur af grunndeild rafiðna brugðust skjótt við og björguðu nýlega forláta kaffivél sem bugast hafði undan miklu álagi og kaffiþambi á kaffistofu kennara. Nemendurnir handlögnu heita Njáll Laugdal Árnason og Þorvaldur Elías Harðarson. Er þetta dæmi um að ekki þarf að leita langt yfir skammt eftir hæfileikafólki þegar hlutir fara aflaga innan veggja skólans. Á myndinni má sjá þá félaga einbeitta við störf.