Jólastemning í desember

Það ríkir jólastemning í skólanum í desember og má finna kósíheit per excellans víða. Skrifstofa skólans hefur verið skreytt hátt og lágt sem og mötuneytið. Einnig er kaffistofa starfsfólks mjög huggulega skreytt og námsráðgjafar brugðu á það ráð að teikna jólaarinn á vegg skrifstofu sinnar.  Ekki veitir af að róa stemninguna og hugann þar sem mikill annatími er framundan hjá öllum, nemendum og starfsfólki.