JARFRÆÐIGANGA UM SELFOSS
Nemendur í jarðfræði við FSu fóru á dögunum í jarðfræðigöngu um Selfossbæ. Stoppað var á fimm stöðum þar sem fræðst var um ýmis jarðfræðileg fyrirbæri sem finna má á Selfossi. Nemendur sáu sjálfir um leiðsögnina og lögðu jafnframt verkefni fyrir samnemendur sína á hverri stöð.
Fyrst var stoppað á svæðinu nálægt Gesthúsum þar sem Þjórsárhraunið var skoðað. Því næst voru Grýlupottarnir á tjaldsvæðinu skoðaðir og þaðan lá leiðin að bökkum Ölfusár þar sem nemendur fræddust um hraunbollana sem þar má finna. Þá var haldið að byggingunni sem reist hefur verið vegna borana eftir heitu vatni og að lokum var stoppað við kirkjuna þar sem fjallað var um Suðurlandsskjálftana. Þar má meðal annars sjá vott af sprungu á klukkuturninum sem myndaðist í Suðurlandsskjálftanum árið 2008.
Ferðin gekk vel, þrátt fyrir að það hafi rignt örlítið á nemendur. Íslenska veðrið er nú ekki þekkt fyrir að haga sér alltaf eins og beðið er um en FSu nemendur létu það lítið á sig fá enda öllu vanir og óþreyjufullur eftir fræðslu.
hþs / jöz







