Jakob Örn komst áfram

Þann 6. október 2009 var haldin Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema 2009-2010 (forkeppni).  Keppnin fór fram á tveimur stigum, neðra stigi fyrir nemendur á 1. og 2. ári  framhaldsskóla og efra stigi fyrir nemendur á 3. og 4. ári. Við F.Su. tóku 2 nemendur þátt í keppninni, 1 á neðra stigi og 1 á efra stigi. Tuttugu og þrír efstu á neðra stigi og álíka margir á efra stigi öðlast þátttökurétt í lokakeppninni sem haldin er á vorönn. Sigurvegurum á hvoru stigi fyrir sig gefst kostur á að taka þátt í Norrænu stærðfræðikeppninni sem fer fram samtímis á öllum Norðurlöndunum.
   Í framhaldi af þessari keppni er svo Alþjóðlega ólympíukeppnin  í stærðfræði sem fram fer í Kazakhstan í júlí 2010.  Þangað verða væntanlega sendir sex keppendur sem valdir verða á grundvelli keppnisferils vetrarins í stærðfræði.
   Nemandi í FSu á fyrsta námsári, Jakob Örn Guðnason, náði þeim ágæta árangri að lenda í 10.-11. sæti á neðra stigi en þar tóku þátt um 200 nemendur á öllu landinu. Jakob hlaut 62 stig en meðalstigafjöldi þessara 200 nemenda var 27 stig.  Jakob hefur því öðlast rétt til að taka þátt í lokakeppninni sem verður haldin á vorönn, líklega um miðjan mars.