Íslandsmót í boccia

Íslandsmót ÍF í einliðaleik í boccia var haldið á Selfossi 3. og 4. október. Um 200 manns kepptu á mótinu sem að mestu fór fram í Iðu. Nemendur af íþróttabraut og úr íþróttaakademíum FSu sáu að stórum hluta um dómgæslu á mótinu og mótsstjóri var Svanur Ingvarsson.