Innritun lokið fyrir haustönn

Innritun í FSu er lokið fyrir haustönn 2013.
Mikil aðsókn er að skólanum og verður þétt setinn bekkurinn.

Samkvæmt Innu (upplýsingarvef framhaldsskóla) eru 1.014 nemendur skráðir til náms við skólann.

Nýnemar sem eru að hefja nám í framhaldsskóla verða 208.

Mikil aðsókn er einnig í verklega námið sem kennt er og eru námsplássin þar nánast fullmönnuð.