Innritun á vorönn- próf hefjast

Lokafrestur til að innrita sig í FSu er næstkomandi föstudagur, 28. nóvember.
Einstaklingar sem ætla að stunda nám þurfa að ljúka vali á áföngum fyrir þennan tíma. Nemendur sem ekki hafa skráð val en ætla samt að vera í skólanum á vorönn þurfa að hafa samband við áfangastjóra eða námsferilsstjóra hið fyrsta.

Síðasti kennsludagur haustannar er á morgun, föstudag. Próf hefjast mánudaginn 1. desember. Strætó mun ganga samkvæmt áætlun, en nánari upplýsingar um ferðir á prófatíma má sjá á hliðarstiku á vef skólans.