Í LEIT AÐ BARNAMENNINGU

Í tilefni af kyrrðarviku þessara páskahátíðar 2026 sem kennd er við dymbil (sem merkir trékólfur í kirkjubjöllu) er ekki úr vegi að rifja upp velheppnaða og fjölmenna vettvangsferð nemenda og kennara í íslenskuáfanganum ÍSLE3BB05 á síðustu önn.

En þar er höndlað með barnabókmenntir og barnamenningu. Lesnar eru fræðigreinar um sögulegt yfirlit íslenskra barnabókmennta, um trú og siðfræði í barnabókmenntum og síðast en ekki síst um flettiþörf barna sem vísar til samspils vandaðs texta og myndskreytinga sem efla sjálfstæða hugsun barna.

Fimm nemendahópar völdu barnabókmenntir á síðustu önn sem er met í sögu skólans. Fjórir kennarar höfðu samráð um efni og aðferðir og réðu vikulega ráðum sínum.

En vettvangsferðin miðvikudaginn 5. nóvember var risið eða klimaxið í áfanganum þar sem helstu menningarstofnanir landsins voru heimsóttar - Þjóðleikhúsið, Listasafn Íslands og Borgarbókasafn Reykjavíkur. Og niðurstaðan var sú (eins og í góðri barnasögu) að allt væri þar upp á tíu. Lifandi (og jafnvel hættuleg) atburðarás með spennu sem endar vel.

Myndir af vettvangi tala sínu máli.

 

jöz.