Hreyfanlegur veggur í veggjalist

Glsæilegur veggur að verða til í áfanga í veggjalist.
Glsæilegur veggur að verða til í áfanga í veggjalist.

Þessa önnina er aðeins önnur nálgun í veggjalistinni. Nú er málað á vegg sem verður samsettur og hreyfanlegur og fer sú vinna fram í svokallaðri Smiðju í Hamri, hinu nýja og glæsilega verknámshúsi FSu. Önnin er hálfnuð og verkefnið því farið að taka á sig góða mynd.

Þegar upp er staðið verður veggurinn tæplega 20 metrar að lengd ef honum verður raðað öllum upp í eina lengju og að auki er málað á hann beggja vegna, sem 40 metrar af list! Það er einnig hægt að hafa hann í smærri einingum, alveg niður í stakar myndir.  

Kennari vinnur nú að því að finna veggnum hentugan sýningarstað í lok annar þar sem veggjalistin fær notið sín og sinnt sínu hlutverki sem er að vera sýnileg, krefjandi, skreytandi og áberandi!