HEIMSÓKN Í KÆLITÆKNI
Í lok september heimsóttu vélvirkjanemar á þriðja kennsluári við FSu ásamt kennurum sínum Borgþóri Helgasyni og Sigurþóri Leifssyni fyrirtækið Kælitækni. Það er leiðandi í orkusparandi og umhverfisvænum lausnum í að kæla og frysta vörur í verslunum og vörugeymslum. Kælitækni er í virku samstarfi við erlend fyrirtæki og með samblöndun af íslensku og erlendu hugviti og þekkingu hefur það náð að nota kolsýru á mjög hagkvæman hátt.
Nemendur fengu kynningu á starfsemi fyrirtækisins og má nefna að það er í samstarfi við danskan skóla sem tekur til sín nema í kælitækni og útskrifar þá sem sveina í greininni. Auk fróðleiksins nutu nemendur veglegra veitinga í hádeginu og öll voru þau mjög spennt að kynna sér frekar þessa hlið vélvirkjanámsins í framtíðinni.
bh / jöz







