Haustannarlok 2015

Fimmtudaginn 17. desember, er prófsýning kl.12.30 -14.00. Nemendur eru hvattir til að hitta kennara, skoða prófin sín og sækja verkefni. Á sama tíma tekur bóksalan á móti notuðum bókum. Athugið aðeins þennan eina dag.

Inna opnar kl. 16:00 í dag og þá geta nemendur skoðað einkunnir sínar þar. Inna verður lokuð þeim sem eiga útistandandi gjöld á haustönn.

Laugardaginn 19. desember er brautskráning sem hefst kl.14. Gestum er boðið upp á kaffi og meðlæti eftir athöfn.