Hátíð hjá Verkmennt

Föstudaginn 27. nóvember sátu 4 kennarar byggingagreina í FSu hátíðaraðalfund FTB, sem er félag kennara í tré- og byggingagreinum.  Fundurinn var haldinn í nýrri og glæsilegri sundlaug Hafnfirðinga, Ásvallalaug.  Auk skoðunarferðar um laugina og venjulegra aðalfundarstarfa voru fyrirlestarar og umræður um vinnustaðanám, nýja námskrá og iðnnemakeppni.  Í lokin var boðið upp á veitingar í tilefni af 20 ára afmæli félagsins og tilkynnt um nýtt nafn á félagið, sem að fengnum tillögum hlaut nafnið Verkmennt.