Háskóladagur í FSu

Hinn árlegi háskóladagur verður haldinn í FSu nk. miðvikudag, 18, mars, kl. 9:45 til 11.30 þar munu allir háskólar landsins, sjö talsins, kynna námsframboð sitt og gefa ítarlegar upplýsingar um skólana. Stóri háskóladagurinn var haldinn í Reykjavík 28. febrúar og nú eru fulltrúar skólanna á yfirreið um landið og fylgja þeirri kynningu eftir. 

Á fésbókarsíðuháskóladagsins er unnt að sækja frekari upplýsingar og einnig á vefsíðuháskóladagsins. Á fésbókarsíðunni er meðal annars að finna nokkur myndbönd þar sem útskrifaðir nemendur úr háskólanámi segja frá lífi sínu og starfi. Myndböndin voru gerð í aðdraganda háskóladagsins 28. febrúar sl. en eru að sjálfsögðu í fullu gildi.