HANDAGANGUR Í IÐU
Nýr og sérlega skemmtilegur atburður átti sér stað í IÐU íþróttahúsi FSu þriðjudaginn 27. maí þegar sjálfboðaliðar úr starfsliði skólans mætti til undirbúa komandi útskrift daginn eftir. Handagangur var í öskjunni sem þýðir að það var fjör og fjölmenni. Allir lögðust líka á árarnar undir verkstjórn Einars Björnssonar og ýmissa úr starfsliði skólans. Sumir mæltu að í upphafi skyldi endinn skoða á meðan aðrir töldu að kapp væri best með forsjá.
Stólum var raðað í beinar raðir, svartar drapperingar settar yfir rimla og gólf íþróttahússins teppalagt þannig að Bónusgrísin hvarf á endanum. Kastarafestingar settar í loftið og upptökuvél gerð klár. Púltinu komið fyrir og pöllum fyrir 16 manna kór. Nú er að bíða úrslitanna á morgun en ATHÖFNIN HEFST KLUKKAN 14.00. Um er að ræða gestamestu útskrift í sögu skólans enda má hver útskriftarnemandi (eða KLÁR eins og þeir eru nefndir) bauða fjórum gestum. Fréttastjóra þótti tilhlýðilegt að ljósmynda gjörninginn milli þess sem hann rétti stóla til réttra aðila.
jöz.