Hamarshögg og dugnaður

smidi2

Á útisvæðinu við Hamar er mikið að gerast. Nýtt gestahús er að rísa, smíðað af 12 nemendum á fjórðu önn í húsasmíði undir handleiðslu Jóns Sigursteins. Þetta hús er smíðað í áfanga sem heitir timburhús, sem er einn fjölmargra áfanga í húsasmíðanáminu. Í áfanga sem heitir gluggar og útihurðir smíða nemendur hurð og glugga í húsið. smidi2Smíðin gengur vel, enda nemendur hörku duglegir

smidi3

. Þeim finnst gaman að sjá húsið rísa og sjá afraksturinn eftir gott dagsverk. Verkefni sem þetta hafa verið unnin í FSu í um átta ár og gagnast nemendum mjög vel til að öðlast skilning á því hvernig timburhús eru uppbyggð og hvernig hægt er hægt er að standa að smíðinni.